Vonarbrú
Almannaheillafélagið Vonarbrú styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa. Skráðu þig í félagiðAlmannaheillafélagið Vonarbrú styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gaza.
Börnin á brúnni þurfa okkar stuðning, styrk og kærleika.
Foreldrar þeirra líka – og ömmur og afar.
Frjáls framlög:
Vonarbrú kt. 420625-1700, 0565-26-06379
Aur: @Vonarbrú
Við höfum leiðina til að koma styrkjunum til þeirra, fljótt og vel.
Þetta gerum við
Við erum almannahagsmunafélag sem leggur áherslu á að styðja við og bæta hag barnafjölskyldna á Gaza í Palestínu. Markmið okkar er að veita þeim þann stuðning sem við erum fær um til að létta undir í þessum krefjandi aðstæðum sem þau eru í.
Ástandið á Gaza versnar dag frá degi, og nú er svo komið að hungursneyð hefur lagst af fullum þunga yfir svæðið, og staðan því alvarlegri en nokkru sinni fyrr.
Verkefnin okkar
Á liðnu ári höfum við styrkt u.þ.b. 70 ungar barnafjölskyldur sem glíma við að halda sér á lífi og þrauka í kjölfar þess efnahagslega og félagslega hruns sem hefur átt sér stað meðal fólksins á Gaza og þau þurfa að glíma við í sínu daglega lífi.
Við trúum á mátt samtakanna okkar til að hafa jákvæð áhrif og erum staðráðin í að halda áfram að stuðla að betri lífskjörum og von fyrir fjölskyldurnar okkar á Gaza.
Fjölskyldurnar okkar
Fjölskyldurnar sem við styrkjum eru ungar fjölskyldur, foreldrarnir flestir fæddir á árunum í kringum 1990 og í sumum fjölskyldum er bara eitt foreldri þar sem hitt hefur verið drepið eða er saknað.
Börnin eru frá einu barni upp í sjö, meirihlutinn yngri en 10 ára. Frá því við hófum okkar starf hafa mörg börn fæðst inn í hópinn okkar, þar af tvíburar og fleiri eru væntanleg á næstu mánuðum.
Hugurinn og hjartað er hjá börnum á Gaza
Leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni milli...
Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni
Leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni milli...
Velkomin til Helvítis
Guðný Gústafsdóttir skrifar 23. september 2025...
Þjóðarmorð Palestínu
Guðný Gústafsdóttir skrifar 19. september 2025...
Helen Ólafsdóttir í viðtali á Samstöðinni
Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára Egilsson....
Borgarar um þjóðarmorð
Guðný Gústafsdóttir starfsmaður Félagsvísindastofnunar, Ólafur Ingólfsson...




